Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í ljósmyndun; allt það sem þarf til að byrja að skapa eigin myndir.
Kennt verður þrjú kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00.
Dagsetningar: 30. október, 2. nóvember. og 6 nóvember 2023.
Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, Reykjavík.
Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að myndavél sem hefur stillanlegt ljóop og hraða.
Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði eru 10 manns. Lágmarksfjöldi er 5.
Námskeiðið verður einungis haldið ef tilskilinn fjöldi þátttakenda næst.
Falli námskeiðið niður verður þeim sem þegar hafa keypt sig inn á námskeiðið endurgreitt.
Námskeiðsgjald er kr. 39.500. Á námskeiðinu verður meðal annars farið í þessa þætti:
Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum en kennari aðstoðar einnig hvern þátttakanda á námskeiðinu varðandi eigin myndavél og stillingar. Þátttakendur námskeiðsins fá verkefni með sér heim sem þeir vinna á milli kennslukvölda. Farið er yfir þau í kennslustundum. Námsefni: Nemendur fá afhentar útprentaðar fyrirlestraskyggnur. Kennari á námskeiðinu er Ellen Inga Hannesdóttir Hún hefur langa reynslu af kennslu á ljósmyndanámskeiðum fyrir byrjendur. Hægt er að fá frekari upplýsingar um námskeiðið með því að skrifa póst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða að hringja í síma 5620623. Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.
Sótt er um námskeiðið undir flipanum Námskeið á heimasíðu skólans.