Samtök sjálfstæðra listaskóla halda sameininglega kynningardaga 21.-25. febrúar næstkomandi, boðið verður upp á opin hús í skólunum og beinar útsendingar frá skólunum.
Klassíski listdansskólinn verður með opið hús fimmtudaginn 24. febrúar kl. 10.00-21.00.
Kvikmyndaskóli Íslands verður með opið hús fimmtudaginn 24. febrúar kl. 13.00-16.00.
Ljósmyndaskólinn verður með beina útsendingu fimmtudaginn 24. febrúar kl. 14.00-15.00
og föstudaginn 25. febrúar kl. 11.00-12.00.
Myndlistaskólinn í Reykjavík verður með opið hús dagana 21.-25. febrúar kl. 10.00-14.00.
Sjá má ítarlegri dagskrá á heimasíðum þessara skóla. Einnig er bent á heimasíðu samtakanna.
Upplagt er fyrir þá sem vilja kynna sér hverskonar listnám er í boði í þessum skólum að taka þátt með einhverjum hætti, koma í heimsókn eða að fyljgast með beinni útsendingu.
Í beinum útsendingum Ljósmyndaskólans mun starfsfólk skólans, nemendur og útskrifaðir nemendur segja frá náminu, sýna dæmi af verkefnum sem unnin eru í náminu og segja frá því hvað tekur við að námi loknu.
Á meðan á beinni útsendingu stendur er opið fyrir spurningar frá áheyrendum/áhorfendurm og um að gera að nota tækifærið og fræðast um diplómanám í skapandi ljósmyndun.
Einnig er auðvitað alltaf hægt að skrifa okkur póst með fyrirspurnum eða að hringja í okkur, sími 5620623.
Bein útsending fimmtudaginn þann 24. feb kl. 14.00 – 15.00
Bein útsending föstudaginn þann 25. febrúar kl. 11.00 – 12.00