Upphaf námsárs hjá nemendum á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2 – Aðferðir við listsköpun

Nemendur á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2 hófu önnina á áfanganum Aðferðir við listsköpun. þar unnu þau undir handleiðslu Orra Jónssonar.

Áherslan í þessum hluta áfangans var á að skoða og að gera tilraunir með myndræna nálgun fremur en hugmyndafræðilega nálgun á ljósmyndir og aðra myndlist. Nemendur kusu margir að kynna afrakstur af vinnu tímabilsins í bókverki eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Nemendum Ljósmyndaskólans býðst enda á námstímanum að læra bókasaum og grunnhandtök í bókbandi og fjölmargir nemendur nýta sér þá þekkingu við skil á verkefnum í náminu enda möguleikarnir á útfærslu slíkra verka nær óþrjótandi.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur