Hugarangur
Í glundroða lífsins rennum við okkur frjáls í rómantískum rússíbana gegnum fortíð, nútíð og framtíð. Við sjúgum veröldina í okkur eins og mítill sýgur könguló sem hefur farið yfir móðuna miklu. Þokuskýjið yfir okkur stækkar ört. Við höngum á bláþræði og hringrás lífsins er farin að dansa örþunnan línudans. Það verður ofskömmtun af dauðadjúpum sprungum. Jafnvel regnboginn fær tár í hvarmana. Hvað er heimsendir amma?
Öfluga peð, þú stendur þig vel í leikriti lífsins. Í þér býr kynngimagnaður kraftur í eilífðar smáblómi. Jafnvægið og vonin búa í þínum kærleik. Við skulum frysta tímann og gefa grósku á ný. Harmabót er í hnossi skilyrðislausrar ástar.
Hugarangur er bókverk með ljósmyndum frá amstri hversdagsins ásamt augnablikum í íslenskri náttúru þegar listamaðurinn sækir í hana til þess að næra sálina, skilja lífið betur og hugleiða í leit að von og jafnvægi á jörðinni sem við deilum.