VINF4VI06 Vinnustofur

Vinnustofurnar eru starfsvettvangur nemenda og gestakennara sem allir eru starfandi ljósmyndarar/listamenn. Í vinnustofum eru tekin fyrir verkefni sem  tengjast listsköpun; hugmyndavinna, rannsóknir og mismunandi aðferðir og tækni.

Þrjár vinnustofur eru í boði á þessari önn og er hver þeirra 2 Fein.

Kennari í vinnustofu bendir á bækur og ráðleggur um það lesefni sem hentar viðfangsefni hverrar vinnustofu og/eða verkefnum einstakra nemenda.

Markmið áfangans er að að opna augu nemenda fyrir því hvernig nota má ljósmyndun á mismunandi hátt í listrænum tilgangi og að veita þeim þjálfun  í skapandi starfi með miðilinn. Enn fremur er markmiðið að ýta undir sköpunarkraft nemenda og að leitast við að opna þeim nýjar leiðir í persónulegri tjáningu.

Í lok áfangans hafa nemendur kynnst því að starfa með ólíkum listamönnum, mismunandi hugmyndum, vinnubrögðum og aðferðum í listsköpun og aukið við skilning sinn á fjölþættri notkun ljósmyndamiðilsins til tjáningar og sköpunar.

Vinnustofurnar geta samanstaðið af fyrirlestrum, hóptímum, einkatímum, sýnikennslu, vettvangsferðum og verklegum æfingum: 66 stundir.

Eigin verkefnavinna: 30 stundir.

Námsmat: verkefni og vinnubækur.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun