Við lok náms á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.
Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Claudia Hausfeld sem vann með nemendum í áfanganum.
Saga Sigurþórsdóttir – Untitled
„Untitled er verkefni sem ég vann út frá verki sem ég gerði í áfanga hjá Einar Fali sem heitir Persónuleg heimildarljósmyndun.
Verkið er um að að komast í sátt við sjálfan sig. Það er unnið út frá minni eigin upplifun á því að vera ósátt með sjálfa mig og finnast erfitt að þykja vænt um mig. Verkið sem ég vann í vinnustofunni Persónuleg heimildarljósmyndun var í raun óður til líkamann míns, og alls sem hann hefur gert fyrir mig. Myndirnar í verkinu eru brot/fragments af myndum og líkamspörtum sem eru síðar settar saman og mynda mynd en stundum getur verið erfitt að sjá hvað brotin sýna.“
Saga setti verkið Untitled upp í stúdíói skólans á Uppskeruhátíðinni og hér má sjá stutt myndband og myndir af verkinu á sýningarstað.
/sr.