Listamaður vikunnar – Natalía Kristjánsdóttir – Að lýsa upp myrkrið.

Listamaður vikunnar hefur pláss í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og nemendur hvattir til þess að sækja um og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum.
Verkefnavalið er fjölbreytt og nemendur sýna skilaverkefni úr áföngum námsins eða önnur verkefni sem þau eru að vinna að.

Það er Natalía Kristjánsdóttir, nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2 sem er listamaður þessarar viku. Hún sýnir afrakstur vinnu sinnar í vinnustofunni Landslag.

Það var Pétur Thomsen sem leiddi nemendur í vinnunni í þessum áfanga og markmiðið var fyrst og fremst að opna nemendum sýn á möguleika þess  að nota landslag sem viðfangsefni í samtímaljósmyndun.  

Natalía segir:

Verkið  Að lýsa upp myrkrið er sprottið af hafinu. Hvaða merkingu hefur það fyrir mér og hvað gerist þegar það er myndað í niðamyrkri?  Get ég sýnt fram tilfinninguna sem ég finn þegar ég horfi á hafið í myrkrinu; hið óþekkta og leyndardómsfulla.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun