Sýning á útskriftarverkefnum nemenda Ljósmyndaskólans í Ljósmyndasafni Reykjavíkur

Þann 13. desember kl. 16.00 opnar sýning á útskriftarverkum þeirra nemenda sem nú ljúka námi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum. Að þessu sinni útskrifast fjórir nemendur sem ljúka þar með 150 Fein eininga námi af Námsbrautum í skapandi ljósmyndun.

Útskriftarnemendur eru:

Ingunn Rós Haraldsdóttir

María Ármanns

Sigríður Hermannsdóttir

Vala Agnes Oddsdóttir.

Verk þeirra eru ólík hvað varðar efnistök, hugmyndir og tækni, endurspegla fjölbreytta möguleika ljósmyndamiðilsins og samtímaljósmyndunar.

Sýningin er í Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography en um árabil hefur Ljósmyndaskólinn verið í samstarfi við Ljósmyndasafnið um að hýsa sýningu á útskriftarverkefnum nemenda.

Sýningin stendur til 5.janúar 2025 og er opin á opnunartíma safnsins.

Á sýningartímabilinu munu nemendur verða með leiðsagnir um sýninguna og verða tímasetningar þeirra auglýstar sérstaklega á miðlum safnsins og skólans.

Verið öll velkomin.

Kynningarmynd er úr verki Maríu Ármanns. – 74 klukkustundir; Hugurinn reykspólar hring eftir hring en tíminn stendur í stað/74 hours; The mind spins in circles while time stands still 

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun