Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans var haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, – Grófarsal. Stóð sýningin frá 13. desember 2024 til 5. janúar 2025.
Uppsetning á sýningu á útskriftarverkum nemenda markar lok náms nemenda við Ljósmyndaskólans en þessi hópur nemenda hafði þá lokið 5 anna námi við skólann. Útskifuðust þær með diplómu í skapandi ljósmyndun.
Fjölbreytni í útsriftarverkum nemenda var mikil og sönnuðu viðfangsefni og aðferðir nemenda vítt svið. Þar tókust þau á við ólík málefni út frá ólíkum forsendum, mismunandi nálgun, listrænni sýn og fagurfræði. Framsetning var á ýmsu formi en sýningin samanstóð af prentum sem hengd voru á vegg ýmist í römmum eða án ramma og svo var vidéóverk hluti af einu verkinu.
Í sal voru einnig til sýnis bókverk útskriftarnemenda frá ýmsum stigum í náminu og þar hægt í mögum tilfellum að sjá vísi að fyrstu hugmyndum að viðfangsefni og efnistökum lokaverkefnis. Margt tekur þó breytingum í vinnsluferlinu eins og vera ber.
Verkin á sýningunni endurspegluðu sannarlega gróskuna í samtímasljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem í ljósmyndamiðlinum felast.
Útskriftarnemendur:
Ingunn Haraldsdóttir, Maria Ármanns., Sigríður Hermannsdóttir og Vala Agnes Oddsdóttir
Sýningarstjóri: Katrín Elvarsdóttir
Myndir af sýningu tók Kristín Ásta Kristinsdóttir