Melkorka Embla Hjartardóttir – Ég gekk um með blóm í fjóra daga.

Við lok náms á Námsbraut í  skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.

Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem vann með nemendum  í áfanganum.

Melkorka Embla Hjartardóttir er ein þeirra sem nú útskrifast af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1.

Lokaverkefni hennar heitir Ég gekk um með blóm í fjóra daga. Það byggði á verkefni í áfanganum Aðferðir við listsköpun sem Melkorka tók fyrr á námsbrautinni. Verkið var í þessari útgáfu samsett af myndum á vegg og viðarplötu ásamt bókverki.

Melkorka Embla segir:

Ég sótti ryðgaða klappstóla í geymsluna mína, ætlaði að sækja bjór í geymsluna hennar mömmu en þar var einungis til freyðivín og powerade. Ég rak peysuna mína utan í ljósgulan vegg sem vinur var að mála og þreif hana í vaskinum uppi. Í Nauthólsvík var maður að æfa kung fu, ung kona í litlu bikiníi óð í volga sjónum á meðan fullklæddur vinur og vinkona fylgdust með henni í flæðarmálinu. Blómin gleymdust á mælaborðinu yfir nótt og ég hætti að vökva þau eftir það. 

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun