Þann 12. desember kl. 16.00 opnar sýning á útskriftarverkum þeirra nemenda sem nú ljúka námi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum. Að þessu sinni útskrifast fjórir nemendur sem ljúka þar með 150 Fein eininga námi af Námsbrautum í skapandi ljósmyndun.
Útskriftarnemendur eru:
Verk þeirra eru ólík hvað varðar efnistök, hugmyndir og tækni, endurspegla fjölbreytta möguleika ljósmyndamiðilsins og samtímaljósmyndunar.
Sýningin er í Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography en um árabil hefur Ljósmyndaskólinn verið í samstarfi við Ljósmyndasafnið um að hýsa sýningu á útskriftarverkefnum nemenda.
Sýningin stendur til 11. janúar 2026 og er opin á opnunartíma safnsins.
Á sýningartímabilinu munu nemendur verða með leiðsagnir um sýninguna og verða tímasetningar þeirra auglýstar sérstaklega á miðlum safnsins og skólans.
Verið öll velkomin.

Kynningarmynd er úr útskriftarverki Írisar Höddu „Rauð klamídíuviðvörun um helgina“.
/sr.