Þau eru útskrifuð!

Fimmtudaginn þann 8. janúar útskrifuðust 4 nemendur af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2 í Ljósmyndaskólanum. 

Það voru þau; Elva ÞrastardóttirGunnar RagnarssonLilja Birna Arnórsdóttir og Íris Hadda Jóhannsdóttir

Athöfnin fór fram í Ljósmyndasafni Reykjavíkur að viðstöddum ættingum og vinum útskriftarnemenda en sýning á útskriftarverkum þeirra stóð yfir í Ljósmyndasafninu frá 12. desember til 11. janúar.  Sýningastjóri sýningarinnar var Katrín Elvarsdóttir

Fögnuður var ríkjandi í útskriftarathöfninni eins og vera ber.

Auðvitað voru flutt ávörp og skálað.

Við óskum þessum fjóru nýútskrifuðu listamönnum hjartanlega til hamingju með áfangann, þökkum þeim samfylgdina hér í Ljósmyndaskólanum og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni. 

Við væntum þess að þau muni láta að sér kveða á vettvangi samtímasljósmyndunar og að við munum sjá mikið af verkum þeirra á komandi tímum.

Þau hafa allt til að bera til að láta til sín taka.

Húrra fyrir því og þeim!

Hér má sjá myndir af útskriftarhópnum eftir útskriftarathöfnina.

Myndirnar tók Kristín Ásta Kristinsdóttir

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur