Listamaður/listakona vikunnar hefur pláss í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og nemendur hvattir til þess að sækja um og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum.
Verkefnavalið er fjölbreytt og nemendur sýna skilaverkefni úr áföngum námsins eða önnur verkefni sem þau eru að vinna að.
Listamaður vikunnar er Svala Rún, nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 og hún segir þetta um myndaröina:
Ljósmyndirnar eru dagbókarfærslur úr lífi mínu en eftir því sem ég eldist hef ég haft sífellt meiri þörf fyrir það að skrásetja hversdagsleikann eins og hann birtist mér.
Verkið er samansett af ljósmyndum teknum á barmi fullorðinsáranna, í mínum heimabæ, og myndum teknum í miðjum flutningum á nýjan stað. Verkið er tilraun til þess að flétta saman þessi tvö tímabil í lífi mínu og ná utan um tilfinninguna sem er að fullorðnast.
Verkið er sjálfstæð vinna en ekki hluti af námi áfanga við skólann sem slíkt.







/sr.