Námskeið: Svarthvít filmuframköllun og stækkun í myrkraherbergi.

Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í svarthvítri filmuframköllun og stækkun.

Námskeið í filmuframköllun og stækkun. Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í svarthvítri filmuframköllun og stækkun.

Viðfangsefni: 

Farið er í grundvallaratriði við myndatökur eins og ljósop og hraða og samspil ljóss og skugga. Kennd eru vinnubrögð við búnað í myrkraherbergi og umgengni við tæki og aðstöðu. Þátttakendur læra að framkalla svarthvítar filmur, gera „kontakta“ af filmum og að stækka ljósmyndir af filmu á pappír. 

Tímabil námskeiðs 10. mars – 15. apríl 2026.

Kennt verður í 9 skipti; 4 kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00 og 4 laugardaga 11.00 – 15.00

Dagsetningar kennsludaga: 

  1. Þri. 10/03
  2. Lau. 14/03
  3. Fi. 19/03
  4. Lau. 21/03
  5. Þri. 24/03
  6. Lau. 28/03
  7. Fi. 09/04 
  8. Lau. 11/04
  9. Mi. 15/04

Staður: Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, 101 Reykjavík en þar er fullbúin framköllunar- og myrkraherbergisaðstaða.

Forkröfur: Þátttakendur þurfa að hafa yfir að ráða 35mm filmumyndavél sem hefur stillanlegt ljósop og hraða.

Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði eru 6 manns.

Lágmarksfjöldi er 5.

Námskeiðið verður einungis haldið ef tilskilinn fjöldi þátttakenda næst. Falli námskeiðið niður verður þeim sem þegar hafa keypt sig inn á námskeiðið endurgreitt.

Námskeiðsgjald: kr. 139.500.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið í þessa þætti:

  • Grunnstillingar: Kennt verður  á ljósop, hraða og ljósnæmi. 
  • Myndbygging:  Farið er í helstu grundvallaratriði mynduppbyggingar og skoðað hvernig uppbygging myndflatar skiptir máli við myndsköpun. Farið í mikilvægi samspils ljóss og skugga við myndatökur.
  • Filman: Eiginleikar filmunnar, stutt kynning á mismunandi filmugerðum.
  • Kynning á búnaði og efnum: Kynntur búnaður sem nota þarf við svarthvíta filmuframköllun og stækkun.
  • Framköllun á svarthvítum filmum: Þátttakendur fá kynningu á undirbúningi  framköllunar á filmum og læra að framkalla filmu.
  • Að gera kontakta af filmum: Nemendur fá kynningu á því að gera kontakta af eigin filmum.
  • Myrkraherbergi. Þátttakendur fá kynningu á myrkraherberginu, búnaði og vökvum og læra að prenta upp myndir af filmum á pappír.

Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum, einkatímum, sýnikennslu og verklegum kennslustundum. Á námskeiðstímanum eru á dagskrá verklegir tímar þar sem nemendur koma og vinna að verkefnum sínum en kennari er við til aðstoðar.

Námsefni: Nemendur fá fyrirlestraskyggnur og kennari bendir á áhugavert efni sem tengist viðfangsefni námskeiðs.

Efni innifalið í námskeiðsgjöldum: Svarthvítar filmur (2 svarthvítar filmur á hvern þátttakanda) allir vökvar til framköllunar og stækkunar í myrkraherbergi, pappír til að gera kontakta og til  prenturnar í myrkraherbergi og filmuplöst. 

Kennsla: Fyrirlestrar og verklegar kennslustundir/æfingatímar í myrkraherbergi eru 29 klst á hvern þátttakanda.

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 20.000 við skráningu á námskeiðið.

Greitt er með greiðsluseðli sem birtist í heimabanka.

Hægt er að skipta upp greiðslum í þrjá hluta innan námskeiðstímabils. Síðustu greiðslu verður að vera lokið fyrir lok námskeiðs.

Skráning á námskeiðið þarf að berast fyrir 4. mars.

Skráning fer fram um tölvupóst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is með upplýsingum um nafn, síma og kennitölu. Gott er að taka fram í umsókn hvort óskað er eftir uppskipingu á greiðslu.

Nánari upplýsingar um námskeiðið og greiðslufyrirkomulag fást með því að senda fyrirspurn á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða hringja í síma 560623.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun