Listamaður vikunnar – Rannveig Björk Gylfa – Hypnagogia

Listamaður vikunnar er Rannveig Björk Gylfa. ( Rannsý) Hún sýnir portrett-abstrakt myndaröð sem er sjálfstætt verkefni, en hún hefur undanfarnar vikur verið að skoða mikilvægi innri sjálfsskoðunar. Hún hefur stuðst þar við kenningar Carl Jung úr greiningarsálfræði sem sýna fram á að það sé mjög mikilvægt manneskjunni að tengjast betur sinni innri veröld; eigin vitund, tilfinningum og skuggum (svo sem ótta og þrám), til þess að öðlast sanna sjálfsþekkingu og uppljómun.

Rannveig segir um verkefnið:

Hypnagogia

“Your vision will become clear only when you can look into your own heart.

Who looks outside, dreams; who looks inside, awakes.” Carl Jung

Carl Jung greindi eigin drauma og drauma skjólstæðinga sinna og ályktaði út frá því að þeir væru úrvinnsla sem værinauðsynleg andlegri heilsu okkar og til þess að takast á við áskoranir lífsins.

Ég vann nýverið að annarri myndaröð, í tengslum við kenningar Carl Jung, á námskeiðinu Að þróa persónulegt myndmál hjá Hallgerði Hallgrímsdóttur. Ég mun halda áfram að vinna að þessu áhugaverða viðfangsefni með mismundandi aðferðum ljósmyndalistsköpunnar.

Verkin voru mótuð í stúdíóvinnu, bæði með dagsbirtu og stúdíóljósum. Rannveig notaði hægan hraða (long exposure) í bland við viljandi hreyfingar með myndavélinni. Einnig hreyfir módelið sig í ákveðnu flæði. Eftirvinnslan var svo gerð í Lightroom.

Rannveig þakkar samnemanda sínum Sarah Lu, sem er módelið í verkinu, fyrir einstaka og frábæra samvinnu og aðstoð við gerð þess.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur