Uppskeruhátíð Ljósmyndaskólans 2026 stendur dagana 9. – 10. maí að Hólmaslóð 6 101 Reykjavík.
Opnun Uppskeruhátíðar er 8/05 kl. 16.00 – 18.00
Á Uppskeruhátíð sýna nemendur Ljósmyndaskólans afrakstur af vinnu vetrarins.
Nemendur Námsbrautar í skapandi ljósmyndun 1 sýna lokaverkefni sín sem eru jafnframt útskriftarverkefni af námsbrautinni.
Þau sem útskrifast af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1, að þessu sinni eru: Auður Lilja Arnþórsdóttir, Árni Árnason, Elín Laxdal, Kolbrún Hulda Proppé Geirsdóttir, Ósk Ebenesersdóttir, Rannveig Björk Gylfadóttir, Sarah Lú, Svala Rún og Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir.
Við munum kynna útskriftarverk þeirra af námsbrautinni á miðlum skólans á næstunni.
Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem leiðbeindi þeim í ferlinu.
Uppskeruhátíð opnar þann 8. maí kl. 16.00 og verður opið laugardag 9/05 og sunnudag 10/05 kl. 12.00 – 17.00.
Nemendur verða á staðnum og taka á móti gestum og segja frá verkunum á sýningunni.
Heitt verður á könnunni – Verið öll hjartanlega velkomin.
Kynningarmynd er úr verki Söruh Lú – .
@oskebenesers
@weaving.time
@audurliljaphotography
@kolbrunhuldageirsdottir
@elinlaxdal1
@svalaimg
@rannsybjorkmindfulphotos
