Aðferðir við listsköpun – Nemendur á námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 og Spessi.

Nú í vikunni var yfirferð á verkefnum nemenda í áfanganum Aðferðir við listsköpun sem er einn áfanga haustmisseris á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1. Viðfangsefni áfangans var hugmyndin, að fá hugmynd, að greina hugmynd og að þróa hugmynd áfram í verkefni. Líkt og áður var það Spessi  sem vann með nemendum að verkefninu.

Í síðustu kennslustund áfangans var yfirferð á verkefnum nemenda og þá  kynnti hver nemandi verkefnið sem unnið var á tímabilinu fyrir kennara  og samnemendum og tók þátt í umræðum um það.

Þá var einnig kaffi og bakkesli eins og hefðin segir til um og svo var auðvitað  tekin hópmynd.

Á myndina vantar 2 af nemendum á námsbrautinni.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun