HUGM4HV02 Aðferðir við listsköpun – hugmyndavinna, 1. hluti

Markmið áfangans er að kynna nemendur fyrir grundvallarþáttum sem snúa að því að vinna með hugmynd og það að þroska hana og næra. Nemendum eru kynntar aðferðir við vinnu með hugmyndir og skipulag slíkrar vinnu, Þeir fá þjálfun í að beita ólíkum aðferðum við að halda utan um hugmyndir sínar og þróa þær en einnig að ræða um hugmyndir og að kynna þær fyrir öðrum.

Áhersla er lögð á að nemendur rannsaki einnig það hvernig hægt er að sækja innblástur til listsköpunar og skoði persónulega nálgun á það viðfangsefni.

Í lok áfangans eiga nemendur að hafa áttað sig á gildi markvissrar vinnu við að þróa hugmyndir, þekkja leiðir til að þorska þær og kunna skil á mismunandi aðferðum við hugmyndavinnu.

Fyrirlestrar, vinna undir handleiðslu,einkatímar: 33 stundir.

Eigin verkefnavinna: 15 stundir.

Námsmat: Vinnubók, verkefni og virkni í tímum.

Ráðlagt lesefni:

  • Simmons MikeMaking Photographs, Planning, Developing and Creating Orginal Photography, Bloomsbury Publishing.
  • Jaeger, Anne-CelineImage Makers, Image Takers.Thames&Hudson.
  • Bussard A.Katherine: Sothestory goes, Yale University Press.
  • Steingrímur EyfjörðHandbók í hugmyndavinnu. Háskólaprent.
Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur