Ástrós Lind – Verði þinn vilji.

Við lok náms á Námsbraut í  skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.

Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem vann með nemendum  í áfanganum.

Ástrós Lind er ein þeirra nemenda sem nú útskrifast af Námsbraut í skapandi ljósmyndun. Lokaverkefni hennar nefnir hún Verði þinn vilji. Það er innsetning í rými sem samanstendur af videói, hljóði og prentuðum spjöldum.

Ástrós segir:

Þetta verk er persónuleg rannsókn á sjálfri mér – unnið út frá 10. spori AA-prógrammsins. Verkið er hugsað sem rými þar sem hægt er að staldra við, tengjast og kannski spegla sig í eigin upplifun. Þetta er ekki endilega sagameð upphaf og endi,heldur vinna sem hættir aldrei og eins konar tilfinningaleg skrá yfir það að reyna að vera heiðarlegur við sjálfan sig.

Markmiðið er að skapa rými fyrir einlæga sjálfskoðun og opna á tengingu viðhversdagsleg augnablik sem oft fara framhjá okkur.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur