Berglind Ýr Jónasdóttir – Hvarvetna

Berglind Ýr  Jónasdóttir er ein 8 nemenda sem útskrifast úr diplómanámi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í byrjun árs 2022. Útskriftarverkefni nemendanna eru sýnd í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og stendur sýningin til 9. janúar.

Hvarvetna

Með ljóðrænum og þöglum ljósmyndum veitir Berglind áhorfendum frelsi til þess að staðsetja sig í þeim hugblæ sem hún hefur skapað í verki sínu Hvarvetna. Hún nýtir ljósmyndavélina til þess að kynnast nýjum heimabæ sínum og setja hann í sjónrænt samhengi við fyrri heimkynni; smábæi á Íslandi og í Bandaríkjunum. Með því að nota þunga og fyrirferðamikla myndavél, í anda bandarískrar ljósmyndahefðar, hægir Berglind á ferlinu og leitast þannig við að koma eigin tilfinningum og persónulegri sýn á framfæri. Innsæið leiðir Berglindi áfram í vali og uppröðun mynda með það að markmiði að skapa staðleysu og heild sem endurspeglar hennar persónulega heim. Heim sem gæti í raun verið hvar sem er, ef einhverstaðar.

Hvarvetna er ljósmyndaverk þar sem persónulegt sjónarhorn ljósmyndarans af dagfari nærumhverfis kveikir í ímyndunarafli áhorfandans og leyfir honum að uppgötva fegurðina í ljósmyndunum á sinn hátt.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun