Við lok náms á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.
Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem vann með nemendum í áfanganum.
Drífa Huld Jóhannsdóttir er ein þeirra nemenda sem nú útskrifast af Námsbraut í sakapandi ljósmyndun. Lokaverkefni hennar nefnir hún Hús úr húsi en það er samansett af ljósmyndum í ramma með baklýsingu og bókverki. Í lokaverkefnisáfanganum vann hún áfram með verkefni sem hún gerði upphaflega í áfanganum Persónuleg heimildaljósmyndun undir handleiðslu Einars Fals fyrr á önninni en þar var skilaverkefnið hennar bókverk sem varð grunnur að verkefninu Hús úr húsi.
Drífa segir þetta: Verkið samanstendur af myndum af húsum sem ég hef búið í og myndum af sjálfri mér í tímalínu. Í verkinu skoða ég hvernig sjálfsmyndin mótast af minningum af heimilum og sögunum sem þeim fylgja.



/sr.