Bókin Aftur – Again – samtal við Sigfús Eymundsson eftir Einar Fal Ingólfsson ljósmyndara, rithöfund og blaðamann kom út samhliða sýningunni Samtal við Sigfús – Í fótspor Sigfúsar Eymundssonar sem opnuð var að viðstöddu fjölmenni í Þjóðminjasafni Íslands, 8. mars 2025.
Einar Falur hefur skrifað um ljósmyndir Sigfúsar og fjallað um þær við kennslu í ljósmyndasögu árum saman en Einar hefur komið að kennslu víða í gegnum árin. Meðal annars hafa nemendur Ljósmyndaskólans notið leiðagnar Einars í ljósmyndasögu og ýmsum öðrum áföngum náms í skapandi ljósmyndun við skólann.
Undanfarin fjögur ár hefur hið stóra og mikila myndasafn Sigfúsar verið fararstjóri á ferðalögum Einars Fals víða um land. Hefur hann bæði endurtekið valin sjónarhorn forvera síns sem og tekið sína eigin myndramma á sömu stöðum og Sigfús myndaði á, í einskonar dagbókarskráningu og samtali um land, sögu og sjónarhorn.
Bókin er sjálfstætt verk sem slík og inniheldur fjölda ljósmynda eftir bæði Einar Fal og Sigfús – sem sýna Ísland í fortíð og samtíð svo vitnað sé meðal annars í upplýsingar á vef Þjóðminjasafnsins.
Þess má líka geta að Einar Falur hefur áður unnið verkefni sem byggð eru upp á samskonar aðferð, það er að segja að feta í fótspor genginna listamanna. Einar Falur rakti til að mynda slóð vatnslitaverka W.G. Collingwood sem varðveitt eru í Þjóðminjasafninu. Því verkefni lauk með sýningunni Sögustaðir: Í fótspor W.G. Collingwoods og útgáfu samnefndrar bókar árið 2010. Sex árum síðar átti Einar Falur annað slíkt samtal er hann ljósmyndaði þá staði sem danski myndlistarmaðurinn Johannes Larsen hafði teiknað hér á landi á ferðum sínum árin 1927 og 1930.

/sr.