Gæjusýning Telmu Har í Myrkraverk Gallery

Uppfyllum þörfina fyrir að gæjast, leggjumst á gatið og laumumst til að skoða nýja sýningu Telmu Har í Myrkraverk Gallery

Sýningin er hluti af dagskrá Barnamenningarhátíðar 2024. Sýningin opnar í Myrkraverk Gallery á Skólvörðustíg 3 miðvikudaginn 23. apríl kl. 16.

Telma lýkur námi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 nú síðar í vor.

Sýningin nefnsti Don’t look it’s art. Hún opnar í Myrkraverk Gallery á Skólvörðustíg 3 miðvikudaginn 23. apríl kl. 16.

Áhorfendur standa fyrir utan gallerýið og horfa inn í gegnum gæjugat á glugga. Sýningin samanstendur af ljósmyndum sem eru klipptar út og settar saman og gefa þrívíddar áhrif. Listakonan blandar saman ýmsu efni svo sem hári og útsaum sem svo rennur saman við  úrklippurnar. Markmiðið er að gefa áhorfanda sjónræna upplifun á draumkenndan hátt og á sama tíma uppfylla þörf okkar til að gægjast og skoða hið óþekkta eða einfaldlega fullnægja forvitni okkar. 

Verið öll hjartanlega velkomin að leggjast á grúfu á gluggann á Skólavörðustígnum og kíkja inn í draumaheiminn.

 Sýningin stendur til 6. maí.

Viðburðir á meðan sýningu stendur: 

25. apríl sumardaginn fyrsta verður Telma með spjall um sýninguna og veitingar

28. apríl, sunnudagur verður sýnikennsla í gerð pappírsleikfanga, þar mun hún sýna þrjár gerðir af pappírs fígúrum öll gerð úr ljósmyndum. 

1. maí, miðvikudagur verður sýnikennsla í gerð “tunnel”bókar. Telma mun sýna einfalda gerð af slíkri bók en bókin er byggð upp með 3-4 myndum og dregin út og myndar þá hálfgerða harmonikku.

4. maí, laugardagur verður lítil sýning inn í galleríinu með ýmsum pappírs leikföngum úr ljósmyndum.

5. maí, sunnudagur verður spjall um sýninguna.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna