Getum bætt við nemendum skólaárið 2022- 2023

Enn eru laus pláss á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 næsta skólaár. Um er að ræða diplómanám á fjórða hæfniþrepi, nám eftir stúdentspróf.

Á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 er kenndur grunnur í  ljósmyndun, ýmsar aðferðir við að beita ljósmyndamiðlinum og það að beita tækni og búnaði sem tilheyrir greininni. Nemendur læra á mismunandi tegundir myndavéla, að beita ljósabúnaði og að vinna með  ljós. Kennd er öll almenn stafræn myndvinnsla, prentun, skönnun og svarthvít filmuframköllun og stækkun. Aðferðir við listsköpun er mikilvægur þáttur í náminu  og nemendur eru einnig kynntir fyrir ýmsum  aðferðum til að þróa hugmyndir sínar og að halda utan um þær og eigið vinnuferli.

Námið er bæði bóklegt og verklegt og mikil áhersla er á að nemendur beiti ljósmyndatækninni og aðferðum við myndvinnslu á skapandi máta og hljóta þeirm mikla þjálfun í að beita tækninni við eigin listsköpun. 

Námið  á námsbrautinni nýtist vel öllum þeim sem áhuga hafa á ljósmyndamiðlinum og fjölbreyttum og skapandi möguleikum hans. Það er einnig afar góður grunnur fyrir frekara nám í  hverskonar sjónlistum.

Allar upplýsingar um námið og umsóknarferlið er að finna á heimasíðu skólans.

Umsóknarferlið er 3 þrep; umsókn, mappa og viðtal.

Sótt er um skólavist af heimasíðu skólans.

Þar er líka að finna allar upplýsingar um umsóknarferlið

Ef þig vilt fá meira að heyra um umsóknarferlið eða námið við skólann endilega hringdu þá í okkur: sími 5620623 eða skrifaðu okkur póst: ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna