Við lok náms á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.
Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem vann með nemendum í áfanganum.
Karen Lind Ketilbjarnarsdóttir er ein þeirra nemenda sem nú útskrifast af Námsbraut í skapandi ljósmyndun. Lokaverkefnið nefnir hún Opin taska.
Hún segir:
Hugmyndin að þessu verkefni kviknaði þegar að ég fór að pæla í því að ég og vinkonur mínar erum með töskur á okkur öllum stundum, sama hvað við erum að gera og þessar töskur eru oftast fullar af dóti sem að okkur finnst mikilvægt að hafa með okkur á hverri stundu. Samt sem áður erum við allar með mjög ólíka hluti í töskunum okkar og fannst mér það segja svo mikið um okkur sem einstaklinga hvað við völdum að hafa í töskunum okkar.
Í verkefnavinnunni komst ég að því að oft er þetta ákveðin öryggishegðun hjá okkur konum til að vera tilbúnar fyrir hvaða aðstæður sem að mögulega gætu komið upp.
Þetta verkefni er því ákveðin innsýn inn í líf og persónuleika þeirra kvenna sem að tóku þátt.




/sr.