Okkur í Ljósmyndaskólanum finnst alltaf gleðiefni þegar út koma nýjar ljósmyndabækur/bókverk. Bókverk eru t.d afar mikilvæg leið til að miðla ljósmyndaverkum og er spennandi birtingarmynd samtímaljósmyndunar.
Katrín Elvarsdóttir hefur nú gefið út bókina Blómstrandi framtíð.
Þar beinir hún sjónum sínum að plöntum sem ferðast hafa á milli heimkynna. Hún eltir þær með myndavélinni – ekki til að festa þær niður heldur til að skrá þær og færa yfir á annað form, eins og segir í texta á bókarkápu.
Það segir einnig: Í myndinni tilheyra þær enn öðrum heimi, þeim heimi sem Katrín skapar. „Með þeim hætti bera þær vitni um eitthvað sem flyst en gleymist ekki og þess sem getur blómstrað – jafnvel langt frá uppruna sínum.“
Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar texta í bókverkið og Hrefna Sigurðardóttir hannaði.
Höfundur gefur út.
Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum Katrínar Elvarsdóttur í Listasafni Reykjavíkur sem ber sama heiti og bókin; Blómstrandi framtíð. Þar sýnir Katrín verk úr fjórum seríun sem hún hefur unnið að um árabil. Allar fjalla þær um inngrip mannsins í náttúruna; Plöntur eru fluttar á milli staða sem gjafir, sem eign, fyrir forvitnissakir eða í nafni rannsókna og framþróunar. Í forgrunni í verkefnunum á sýningunni eru fjórar tegundir; kirsuberjatré, bananatré, fenjagreni og kínversk plastblóm. Hver þessara tegunda býr yfir langri og áhugaverðri sögu sem tengir saman ólíkar heimsálfur. Í verkunum mætast grípandi fegurð og hugleiðingar um uppruna. Katrín veltir fyrir sér hvað það þýðir að tilheyra, að festa rætur – vera aðfluttur og samt hluti af heild, svo vitnað sé til kynningartexta Listasafns Reykjavíkur um sýninguna.
Bókverkið Blómstrandi framtíð er til sölu í safnbúð Listasfns Reykjavíkur.
Hér má sjá nokkrar opnur úr bókverkinu Blómstrandi framtíð.








/sr.