Við lok náms á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.
Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem vann með nemendum í áfanganum.
Kjartan Hreinsson er einn þeirra nemenda sem nú útskrifast af Námsbraut í skapandi ljósmyndun. Lokaverkefni hans er bókverk og heitir Millimál.
Kjartan segir um verkið.
Millimál
Þetta er persónulegt verk sem samanstendur af ljósmyndum sem ég tek í frítíma mínum. Ég vinn mikið – er í skóla, vinn meðfram náminu og sinni aukaverkefnum.
Þegar mér gefst kostur á hvíld hellist yfir mig eirðarleysi og sektarkennd. Mér finnst ég þurfa að fanga hversdaginn og finn mig oft í þeirri stöðu að vera kominn út úr húsi með myndavél þó ég sé ekki með áfangastað. Stundum tekst vel til en stundum ekki og þá finnst mér að ég hefði betur hvílt mig.
Nú reyni ég að gefa mér meiri tíma í eldhúsinu en þar fæ ég útrás fyrir vinnuþörfina og geng að því vísu að ég kem nærðari út úr því ferli.
Verkið er óður til þessa millibilsástands.






/sr.