Kristin Gjöverå – (in case you lose this one)

Við lok náms á Námsbraut í  skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.

Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Claudia Hausfeld sem vann með nemendum  í áfanganum.

Kristín Gjöverå. – (In case you lose this one)

Verkið fjallar um ferð mína í gegnum meðgöngur, missi og kvíða ásamt reynslu minni af því að vera ólétt kona í ópersónulegu og kuldalegu heilbrigðiskerfi. 

Í uppsetningu verksins má sjá nokkuð mjúka tímalínu atburða flæða í gegn.  Tilfinningalega hliðin er öðrum megin og klíníska hinum megin. 

Með verkinu fylgir þráhyggjukennd skráning á hreyfingum barns í móðurkviði, allt frá fyrstu hreyfingu til hinnar seinustu.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur