Listamaður vikunnar – Árni Árnason – Myrkranna á milli.

Listamaður vikunnar er Árni Árnason.
Hann sýnir verk sem hann nefnir MYRKRANNA Á MILLI.

Hann lætur eftirfarandi texta fylgja:

Mér hefur lengi þótt gaman að lesa í ólík birtubrigði dagsins frá því ljósið læðist inn í myrkrið og leysir það upp, hrósar sigri stutta stund en verður svo að láta undan myrkrinu á ný vegna óhjákvæmilegs snúnings jarðarinnar. Það hefur ekki farið framhjá mér hvernig ský og himinn speglast í stórum byggingum úr stáli og gleri og hvernig birtan skerpir og jafnvel umbreytir formum bygginga eftir því hvernig hún fellur á þær. Turninn á Höfðatorgi er ein slíkra bygginga. Ég hef séð hann eins og hvítglampandi spegil að sumarlagi, gulleitan í vetrarbirtu, rauðleitan við sólarupprás og sólsetur og jafnvel séð skýhnoðra á siglingu í himinblárri byggingunni, eða þá ég sé hann í gráum og grásvötum tónum undir dökkum ógnandi skýjum. 

Mig langaði til að skoða nánar þennan leik ljóssins um turninn og taka syrpu mynda af honum frá morgni til kvölds. Ég lét til skarar skríða þann 8. desember sl. Veðrið var hvorki gott né vont þennan dag, frekar skýjað og hvasst um tíma, úrkomulaust og kalt allan daginn. Myndatakan hófst í svarta myrkri, eini votturinn um ljós sólar var endurkast þess frá tunglinu hátt á himni, en turninn sjálfur auk nálægra bygginga hins vegar heilmikill ljósgjafi í myrkrinu. Rafljósin farin að streyma út um glugga enda margir komnir til vinnu og ljósin kveikt á flestum hæðum. Raflýsingin verður svo minna áberandi eftir því sem líður á daginn og varla sýnileg um miðjan dag þegar dagsbirtan er farin að leika um stál og gler. Speglaðar skýjamyndir og endurkast altumlykjandi dagsbirtunnar skerpir form turnsins og nálægra bygginga. En þau form víka svo þegar fer að skyggja seinni part dagsins og rafmagnsljósin taka völdin á ný.

Myndaröðin sem hér er sýnd er tekin 8. desember sl. Myndirnar eru teknar á Nikon Z9 með Nikkor 24–120mm linsu. Þrífæti var stillt upp nokkurn veginn á sama fermetranum í öll skiptin. Linsan var höfð á 27–30mm, ISO 100, ljósop 8 og lýsingartími frá 1/25 sek til 5 sek. Myndirnar voru teknar á u.þ.b. klukkutíma fresti frá kl 8:44 um morguninn til kl 17:03 síðdegis. Svipuð vinnsla var á öllum myndum, aðallega global vinnsla, maskar á stöku mynd einkum til að létta á skuggum í forgrunni og til að fá örlítið betri teikningu í himinn.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur