Listamaður vikunnar – Brynja Bærings Sindradóttir – Nafnlaust verk

Listamaður vikunnar hefur pláss í skólahúsnæðinu  til umráða í eina viku og getur birt þar verk sín. Nemendur eru hvattir til þess að sækja um að vera Listamaður vikunnar allavega einu sinni á hverju námsári og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum. 

Verkefnaval  í Listamaður vikunnar er fjölbreytt og nemendur sýna jafnt skilaverkefni úr áföngum námsins eða ýmis önnur verkefni sem þau eru að vinna að.

Listamaður þessarar viku er Brynja Bærings Sindradóttir nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1. Hún sýnir myndir sem hún tók fyrir skilaverkefni í áfanganum Stafræn ljósmyndun og myndvinnsla en þar þurfa nemendur að skila samsettri mynd í portfólió bók áfangans og að nota við þá vinnslu helstu hjálpartól Photoshop myndvinnsluforritsins. Skil í áfanganum eru eftir páska svo serían er verkefni í vinnslu og án titils.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna