Listamaður vikunnar – Elín Laxdal – Stóma

Listamaður vikunnar er Elín Laxdal nemendi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1. Hún sýnir verkefni sem hún vann í Vinnustofunni Portrettseríur fyrr á þessari önn. Spessi leiddi nemendur í vinnuni í áfanganum.

Elín Laxdal – Stóma

Stóma er tilbúið op frá húð og inn í líffæri líkamans, annað hvort tímabundið eða varanlegt.

Algengustu ástæður stóma eru:

  • Alvarlegir bólgusjúkdómar í görnum
  • Krabbamein
  • Meðfæddir gallar á meltingavegum
  • Kyngingarörðugleikar
  • Sjúkdómar í efri loftvegum
  • Áverkar/slys

Fjöldi einstaklinga hérlendis með stóma í kviðarholslíffæri er  á bilinu 300-400. 

Hluti fólks sem fær varanlegt stóma finnst óþægilegt að sýna það á almanna færi t.d. á sundstöðum. Upplýsingagjöf um ástæður stoma og vandamál sem fylgja því er ábótavant og getur valdið erfiðleikum fyrir stómabera. Gott dæmi eru ferðalög erlendis þegar stómaþegi þarf að hafa með sér töluvert magn af útbúnaði til þess að hirða um stómað. Dæmi eru um að stómaþegar séu stöðvaðir við tollskoðun og rengdir um ástand sitt. Það sést jú ekki utan á fötunum….

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur