Listamaður vikunnar – Kristín Gjöverå Magnúsdóttir – Tourist

Listamaður vikunnar hefur pláss í skólahúsnæðinu  til umráða í eina viku og getur birt þar verk sín. Nemendur eru hvattir til þess að sækja um að vera Listamaður vikunnar allavega einu sinni á hverju námsári og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum. 

Verkefnaval  í Listamaður vikunnar er fjölbreytt og nemendur sýna jafnt skilaverkefni úr áföngum námsins eða ýmis önnur verkefni sem þau eru að vinna að.

Listamaður þessarar viku er Kristín Gjöverå Magnúsdóttir nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1.

Hún segir þetta: Verkið heitir Tourist og var unnið í vinnustofunni Portrettseríur hjá Spessa fyrr á árinu.

Með verkinu leitaðist ég við að skoða hvað það er sem einkennir ferðamenn; hvers vegna þekkjum við þá útlitslega og hvers vegna stinga þeir í stúf? Einnig langaði mig að persónugera þennan hóp sem mikið er fjallað um í íslensku samfélagi sem heild en lítið sem persónur. 

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna