Listamaður vikunnar – Maren Valsdóttir – Nekt á bláum bakgrunni.

Listamaður vikunnar hefur hluta af vegg í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og getur birt þar verk sín. Nemendur eru hvattir til þess að nota tækifærið og gera ýmsiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum.

Listamaður vikunnar að þessu sinni er  Maren Valsdóttir nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2.

Hún sýnir verkið Nekt á bláum bakgrunni en það vann hún í áfanganum Listasaga undir handleiðslu Aðalheiðar Guðmundsdóttur.

Maren segir þetta um verkið Nekt á bláum bakgrunni.

 Hugmyndin var að gera ljósmyndaverk í anda Henri Matisse og varð ein frægasta klippimynd listasögunnar Blue Nudes fyrir valinu en það er sería af litografíum sem eru úrklippur af nöktum líkama í mismunandi stellingum.

Verkið  Nekt á bláum bakgrunni er ljósmyndasería sem inniheldur fjórar klippimyndir af kvenlíkamanum á bláum bakgrunni.  Viðfangsefnið var prentað út, klippt niður í litla búta sem var raðað saman aftur upp í ný form, því næst var verkefnið skannað inn í tölvu til að bæta við lit og fjarlægð í myndina.

Instagram@marenvals

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun