Ósk Ebenesersdóttir er listamaður vikunnar. Hún sýnir tvö stór prent sem hún nefnir Óvænt samtal.
Hún segir eftirfarandi:
Tvær myndir teknar á filmuvél Mamiya 645 síðastliðið sumar.
Önnur sýnir börn á leik við ána á Flúðum, tekin á góðviðrisdegi. Hin er tekin við Hafravatn með ICM (intentional camera movement) tækni, þar sem hreyfingin leysir upp landslagið og Esjan sést í bakgrunni.
Fyrir þetta verkefni var ég að prenta í fyrsta skiptið á rúllu og ætlaði upphaflega aðeins að prenta myndina frá Flúðum, en fyrir mistök fór hin myndin í prentun líka. Það reyndist vera heppni því þær tala saman þrátt fyrir að vera ólíkar.
Í fyrri myndinni opnast rýmið í lögum, með börnum, vatni, bakka og landslagi. Augnablikið dreifist yfir myndflötinn. Í hinni fellur rýmið saman og hreyfingin dregur allt að yfirborði þar sem land og vatn renna saman.
Með því að horfa á þær saman má velta fyrir sér hvernig mynd getur bæði haldið utan um stað og leyst hann upp.


/sr.