Listamaður vikunnar – Sandra Björk Bjarnadóttir – Minning

Listamaður vikunnar hefur hluta af vegg í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og getur birt þar verk sín. Nemendur eru hvattir til þess að nota tækifærið og gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum.

Listamaður þessarar viku er Sandra Björk Bjarnadóttir og sýnir hún verk í vinnslu sem hún nefnir Minning. Sandra er nemandi á lokaönn náms í Ljósmyndaskólanum. 

Sandra segir þetta um verkið Minning

Minning er verk í vinnslu þar sem  Sandra vinnur með safn ljósmynda. Þar endurspeglar hún minningar barnæsku sinnar og hvernig hún man eftir atburðum í lífi sínu sem barn. Hún notar endurtekningar í verkinu sem vísun í það hvernig minningar breytast frá því þegar augnablikið átti sér stað.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna