Listamaður/listakona vikunnar hefur pláss í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og nemendur hvattir til þess að sækja um og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum.
Verkefnavalið er fjölbreytt og nemendur sýna skilaverkefni úr áföngum námsins eða önnur verkefni sem þau eru að vinna að.
Sarah Lú, nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 er listamaður vikunnar að þessu sinni. Hún sýnir verkefni sem hún vann í vinnustofunni Samtímaljósmyndun nú á haustönn en þar var það Pétur Thomsen sem leiddi nemendur í vinnu, skoðuð voru mismunandi viðfangsefni í samtímaljósmyndun, aðferðir, nálgun og sjónarhorn. Nemendur fengu að kynnast fjölmörgum ólíkum ljósmyndurum sem beita miðlinum með mismunandi hætti í samtímanum.
Verkið nefnist Undercurrent













/sr.