Ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur.
Kennt verður þrjú kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00 í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, 101 Reykjavík.
Samtals: 9 kennslustundir.
Dagsetningar námskeiðsins eru: 6. september, 9. september og 13. september 2021.
Námskeiðsgjald er kr. 36.000
Þátttakendur verða að hafa undir höndum eigin myndavél sem hefur stillanlegt ljóop og hraða.
Farið verður í eftirfarandi grundvallaratriði:
Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í ljósmyndun; allt það sem þarf til að byrja að skapa eigin myndir.
Myndavélar: Farið verður yfir mismunandi tegundir stafrænna myndavéla, kosti þeirra og galla.
Grunnstillingar: Kennt verður ýtarlega á ljósop, hraða og ljósnæmi.
Linsur: Nemendur læra að þekkja mismunandi linsur og geta valið hverskonar linsa hentar þeirra nálgun á ljósmyndun.
Dýptarskerpa: Skoðað verður og farið yfir hvernig ljósmyndari getur nýtt ljósopið til að stjórna dýptarskerpuljósmynda.
Myndbygging: Farið verður í uppbyggingu myndflatar og leitast við að nemendur öðlist skilning á grunnhugmyndummynduppbyggingar.
Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum en kennari aðstoðar einnig hvern þátttakanda á námskeiðinu varðandi eigin myndavél og stillingar.
Þátttakendur námskeiðsins fá verkefni með sér heim sem þeir vinna á milli kennslukvölda. Farið er yfir þau í kennslustundum.
Námsefni: Nemendur fá afhentar útprentaðar fyrirlestraskyggnur.
Kennari á námskeiðinu er Ellen Inga Hannesdóttir
Sótt er um námskeiðið með því að skrifa tölvupóst á netfangið ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is
Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 manns.
Bent er á að mögulegt er að kaupa gjafakort hjá Ljósmyndaskólanum sem hægt er að nota sem greiðslu upp í námskeið.
Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.