Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í ljósmyndun; allt það sem þarf til að byrja að skapa eigin myndir. Kennt verður þrjú kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00.
Dagsetningar: 31. janúar, 2. og 7. febrúar 2022.
Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, Reykjavík. Þátttakendur þurfa að hafa undir höndum myndavél sem hefur stillanlegt ljóop og hraða. Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði eru 8 manns.
Námskeiðsgjald er kr. 36.000
Á námskeiðinu verður meðal annars farið þessa þætti:
- Myndavélar: Skoðaðar mismunandi tegundir stafrænna myndavéla, kostir þeirra og gallar.
- Grunnstillingar: Kennt verður á ljósop, hraða og ljósnæmi.
- Linsur: Nemendur læra að þekkja mismunandi linsur og geta valið hverskonar linsa hentar þeirra nálgun á ljósmyndun.
- Dýptarskerpa: Hvernig nýtir ljósmyndari ljósop til að stjórna dýptarskerpu ljósmynda.
- Myndbygging: Farið er í helstu grundvallaratriði mynduppbyggingar og skoðað hvernig uppbygging myndflatar skiptir máli við myndsköpun.
Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum en kennari aðstoðar einnig hvern þátttakanda á námskeiðinu varðandi eigin myndavél og stillingar. Þátttakendur námskeiðsins fá verkefni með sér heim sem þeir vinna á milli kennslukvölda. Farið er yfir þau í kennslustundum.
Námsefni: Nemendur fá afhentar útprentaðar fyrirlestraskyggnur. Kennari á námskeiðinu er Ellen Inga Hannesdóttir Hún hefur langa reynslu af kennslu á ljósmyndanámskeiðum fyrir byrjendur.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um námskeiðið með því að skrifa póst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða að hringja í síma 5620623.
Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.
Sótt er um námskeiðið undir flipanum Námskeið á heimasíðu skólans.