Ljósmyndun 1 – ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur 25. og 28. nóvember og 2. desember 2024.

Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í ljósmyndun; allt það sem þarf til að byrja að skapa eigin myndir.

Kennt verður þrjú kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00.

Dagsetningar: 25. og 28. nóvember  og 2. desember

Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, Reykjavík.

Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að myndavél sem hefur stillanlegt ljóop og hraða.

Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði eru 10 manns.

Lágmarksfjöldi er 5.

Námskeiðið verður einungis haldið ef tilskilinn fjöldi þátttakenda næst. Falli námskeiðið niður verður þeim sem þegar hafa keypt sig inn á námskeiðið endurgreitt.

Námskeiðsgjald er kr. 39.500.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið í þessa þætti:

  • Myndavélar: Skoðaðar mismunandi tegundir stafrænna myndavéla, kostir þeirra og gallar.
  • Grunnstillingar: Kennt verður  á ljósop, hraða og ljósnæmi.
  • Linsur: Nemendur læra að þekkja mismunandi linsur og geta valið hverskonar linsa hentar þeirra nálgun á ljósmyndun.
  • Dýptarskerpa: Hvernig  nýtir ljósmyndari  ljósop til að stjórna dýptarskerpu ljósmynda.
  • Myndbygging:  Farið er í helstu grundvallaratriði mynduppbyggingar og skoðað hvernig uppbygging myndflatar skiptir máli við myndsköpun.

Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum en kennari aðstoðar einnig hvern þátttakanda á námskeiðinu varðandi eigin myndavél og stillingar. Þátttakendur námskeiðsins fá verkefni með sér heim sem þeir vinna á milli kennslukvölda. Farið er yfir þau í kennslustundum. Námsefni: Nemendur fá afhentar útprentaðar fyrirlestraskyggnur.

Kennari á námskeiðinu er  Ellen Inga Hannesdóttir   Hún hefur langa reynslu af kennslu á ljósmyndanámskeiðum fyrir byrjendur.

Hægt er að fá frekari upplýsingar um námskeiðið með því að skrifa póst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða að hringja í síma 5620623.

Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur