Námskeið í filmuframköllun og stækkun. Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í svarthvítri filmuframköllun og stækkun.
Viðfangsefni:
Farið er í grundvallaratriði við myndatökur eins og ljósop og hraða og samspil ljóss og skugga. Kennd eru vinnubrögð við búnað í myrkraherbergi og umgengni við tæki og aðstöðu. Þátttakendur læra að framkalla svarthvítar filmur, gera „kontakta“ af filmum og að stækka ljósmyndir af filmu á pappír.
Tímabil námskeiðs 10. mars – 15. apríl 2026.
Kennt verður í 9 skipti; 4 kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00 og 4 laugardaga 11.00 – 15.00
Dagsetningar kennsludaga:
- Þri. 10/03
- Lau. 14/03
- Fi. 19/03
- Lau. 21/03
- Þri. 24/03
- Lau. 28/03
- Fi. 09/04
- Lau. 11/04
- Mi. 15/04
Staður: Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, 101 Reykjavík en þar er fullbúin framköllunar- og myrkraherbergisaðstaða.
Forkröfur: Þátttakendur þurfa að hafa yfir að ráða 35mm filmumyndavél sem hefur stillanlegt ljósop og hraða.
Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði eru 6 manns.
Lágmarksfjöldi er 5.
Námskeiðið verður einungis haldið ef tilskilinn fjöldi þátttakenda næst. Falli námskeiðið niður verður þeim sem þegar hafa keypt sig inn á námskeiðið endurgreitt.
Námskeiðsgjald: kr. 139.500.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið í þessa þætti:
- Grunnstillingar: Kennt verður á ljósop, hraða og ljósnæmi.
- Myndbygging: Farið er í helstu grundvallaratriði mynduppbyggingar og skoðað hvernig uppbygging myndflatar skiptir máli við myndsköpun. Farið í mikilvægi samspils ljóss og skugga við myndatökur.
- Filman: Eiginleikar filmunnar, stutt kynning á mismunandi filmugerðum.
- Kynning á búnaði og efnum: Kynntur búnaður sem nota þarf við svarthvíta filmuframköllun og stækkun.
- Framköllun á svarthvítum filmum: Þátttakendur fá kynningu á undirbúningi framköllunar á filmum og læra að framkalla filmu.
- Að gera kontakta af filmum: Nemendur fá kynningu á því að gera kontakta af eigin filmum.
- Myrkraherbergi. Þátttakendur fá kynningu á myrkraherberginu, búnaði og vökvum og læra að prenta upp myndir af filmum á pappír.
Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum, einkatímum, sýnikennslu og verklegum kennslustundum. Á námskeiðstímanum eru á dagskrá verklegir tímar þar sem nemendur koma og vinna að verkefnum sínum en kennari er við til aðstoðar.
Námsefni: Nemendur fá fyrirlestraskyggnur og kennari bendir á áhugavert efni sem tengist viðfangsefni námskeiðs.
Efni innifalið í námskeiðsgjöldum: Svarthvítar filmur (2 svarthvítar filmur á hvern þátttakanda) allir vökvar til framköllunar og stækkunar í myrkraherbergi, pappír til að gera kontakta og til prenturnar í myrkraherbergi og filmuplöst.
Kennsla: Fyrirlestrar og verklegar kennslustundir/æfingatímar í myrkraherbergi eru 29 klst á hvern þátttakanda.
Greiða þarf staðfestingargjald kr. 20.000 við skráningu á námskeiðið.
Greitt er með greiðsluseðli sem birtist í heimabanka.
Hægt er að skipta upp greiðslum í þrjá hluta innan námskeiðstímabils. Síðustu greiðslu verður að vera lokið fyrir lok námskeiðs.
Skráning á námskeiðið: Senda tölvupóst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is með upplýsingum um nafn, síma og kennitölu. Gott er að taka fram í umsókn hvort óskað er eftir uppskipingu á greiðslu.
Nánari upplýsingar um námskeiðið og greiðslufyrirkomulag fást með því að senda fyrirspurn á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða hringja í síma 560623.









