Ljósmyndun 1 – byrjendanámskeið í ljósmyndun september 2021.

Ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur.

Kennt verður þrjú kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00 í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, 101 Reykjavík.

Samtals: 9 kennslustundir.

Dagsetningar námskeiðsins eru: 6. september, 9. september og 13. september 2021. 

Námskeiðsgjald er kr. 36.000

Þátttakendur verða að hafa undir höndum eigin myndavél sem hefur stillanlegt ljóop og hraða.

Farið verður í eftirfarandi grundvallaratriði:

Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í ljósmyndun; allt það sem þarf til að byrja að skapa eigin myndir.

Myndavélar: Farið verður yfir mismunandi tegundir stafrænna myndavéla, kosti þeirra og galla.

Grunnstillingar: Kennt verður ýtarlega á ljósop, hraða og ljósnæmi.

Linsur: Nemendur læra að þekkja mismunandi linsur og geta valið hverskonar linsa hentar þeirra nálgun á ljósmyndun.

Dýptarskerpa: Skoðað verður og farið yfir hvernig ljósmyndari getur nýtt ljósopið til að stjórna dýptarskerpuljósmynda.

Myndbygging: Farið verður í uppbyggingu myndflatar og leitast við að nemendur öðlist skilning á grunnhugmyndummynduppbyggingar.

Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum en kennari aðstoðar einnig hvern þátttakanda á námskeiðinu varðandi eigin myndavél og stillingar.

Þátttakendur námskeiðsins fá verkefni með sér heim sem þeir vinna á milli kennslukvölda. Farið er yfir þau í kennslustundum.

Námsefni: Nemendur fá afhentar útprentaðar fyrirlestraskyggnur. 

Kennari á námskeiðinu er Ellen Inga Hannesdóttir

Sótt er um námskeiðið með því að skrifa tölvupóst á netfangið ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is

Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 manns.

Bent er á að mögulegt er að kaupa gjafakort hjá Ljósmyndaskólanum sem hægt er að nota sem greiðslu upp í námskeið.

Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna