Nemendur á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 hafa nú í janúar tekið þátt í vinnustofunni Portrettseríur og unnu þar undir handleiðslu Spessa.
Vinnustofur eru hluti náms á báðum námsbrautum en þær eru samstarfsvettvangur nemenda og gestakennara sem allir eru starfandi ljósmyndarar/listamenn. Vinnustofurnar standa alltaf yfir í afmarkaðan tíma og eru ólíkar að efni og innihaldi. Í vinnustofum eru tekin fyrir verkefni sem tengjast listsköpun; hugmyndavinna, rannsóknir og mismunandi aðferðir og tækni.
Í vinnustofunni Portrettseríur var sjónum beint að portrettseríum og möguleikum þeirra í samtímaljósmyndun. Nemendur unnu verkefni og fengu handleiðslu við það að búa til heildstæða myndaröð af fólki og þjálfun í að beita ýmsum mikilvægum þáttum til að skapa sannfærandi portrettseríu svo sem eins og varðandi það hve val á myndum og val á sjónarhorni í frásögn skiptir mikilu máli.
Að lokinni yfirferð á verkefnum nemenda í síðastu kennslustund áfangans var að sjálfsögðu tekin hópmynd eins og hefðin segir til um.