Ljósmyndun 1 – byrjendanámskeið í ljósmyndun. Nýjar dagsetningar komnar í auglýsingu.

Nú eru komnar  dagsetningar fyrir hið sívinsæla námskeið Ljósmyndun 1 – byrjenda námskeið í ljósmyndun í haust.

Á námskeiðunum  eru kennd undirstöðuatriði í ljósmyndun; allt það sem þarf til að byrja að skapa eigin myndir. Kennt er þrjú kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00.

Fyrsta námskeiðið þetta haust verður haldið  21. ágúst, 24. ágúst og 28 ágúst 2023.

Fleiri dagsetningar má sjá undir flipanum Námskeið hér á heimasíðunni.

Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, Reykjavík.

Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að myndavél sem hefur stillanlegt ljóop og hraða.

Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði eru 10 manns. Lágmarksfjöldi er 5.

Námskeiðið verður einungis haldið ef tilskilinn fjöldi þátttakenda næst.

Falli námskeiðið niður verður þeim sem þegar hafa keypt sig inn á námskeiðið endurgreitt.

Námskeiðsgjald er kr. 39.500. Á námskeiðinu verður meðal annars farið í þessa þætti:

  • Myndavélar: Skoðaðar mismunandi tegundir stafrænna myndavéla, kostir þeirra og gallar.
  • Grunnstillingar: Kennt verður  á ljósop, hraða og ljósnæmi.
  • Linsur: Nemendur læra að þekkja mismunandi linsur og geta valið hverskonar linsa hentar þeirra nálgun á ljósmyndun.
  • Dýptarskerpa: Hvernig  nýtir ljósmyndari  ljósop til að stjórna dýptarskerpu ljósmynda.
  • Myndbygging:  Farið er í helstu grundvallaratriði mynduppbyggingar og skoðað hvernig uppbygging myndflatar skiptir máli við myndsköpun.

Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum en kennari aðstoðar einnig hvern þátttakanda á námskeiðinu varðandi eigin myndavél og stillingar. Þátttakendur námskeiðsins fá verkefni með sér heim sem þeir vinna á milli kennslukvölda. Farið er yfir þau í kennslustundum. Námsefni: Nemendur fá afhentar útprentaðar fyrirlestraskyggnur. Kennari á námskeiðinu er  Ellen Inga Hannesdóttir   Hún hefur langa reynslu af kennslu á ljósmyndanámskeiðum fyrir byrjendur. Hægt er að fá frekari upplýsingar um námskeiðið með því að skrifa póst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða að hringja í síma 5620623.

Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.

Sótt er um námskeiðið undir flipanum Námskeið á heimasíðu skólans.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun