Samstarf Ljósmyndaskólans og fataverkefnis Rauða krossins – Frelsið er yndislegt…

Hluti af námi nemenda á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 við Ljósmyndaskólann er áfanginn Að lesa í og skapa ljós. Þar er unnið með eitt meginverkfæri ljósmyndarans ljósið. Nemendur læra þar að lesa í ljós og að beita því við myndatökur, að nota mismunandi ljósgjafa og  blanda saman ólíkum ljósgjöfum.

Áfanginn er í fjórum hlutum og er kenndur af tveimur kennurum auk gestafyrirlesara.

Það er í síðasta hluta áfangans sem nemendur vinna  undir handleiðslu ljósmyndara að þessu samstarfsverkefni með fataverkefni Rauða krossins.

Að þessu sinni var  Yael BC.  leiðbeinandi nemenda í þessum hluta áfangans.

Verkefnið er hópaverkefni og felst í því að nota fatnað frá verslunum Rauða krossins í myndatökum, búa til áhugaverðar myndir sem vekja athygli á verkefninu og inntaki þess. Myndirnar eru í framhaldi notaðar á vegum Rauða krossins til að vekja athygli á verkefninu.

Með fataverkefni Rauða krossins er verið að gefa fötum nýtt líf, endurnýta, sporna við sóun og með því að stemma stigu við hnattrænni hlýnun.

Öll innkoma af sölu á notuðum fatnaði  í verslunum Rauða krossins fer til góðgerðarmála eða hjálparstarfs á vegum Rauða krossins.

Auður Lilja Arnþórsdóttir, Ólafur Sveinn Guðmundsson, Árni Árnason og Rannveig Björk Gylfadóttir unnu verkefni sem þau kalla Frelsið er yndislegt…

Þau láta eftirfarandi texta fylgja:

Myndaserían sýnir par á miðjum aldri að njóta sín saman við útiveru á Íslandi, í fallegum og þægilegum fötum úrvönduðum efnum og í hlýlegum litum, í stíl við náttúruna.

Markmið með seríunni fyrir Rauða krossinn er að sýna að fötin sem seld eru í búðunum höfði ekki bara til yngrimarkhóps heldur líka til miðaldra/eldra fólks.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur