Samstarf Ljósmyndaskólans og fataverkefnis Rauða krossins – Látum fötin skína.

Hluti af námi nemenda á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 við Ljósmyndaskólann er áfanginn Að lesa í og skapa ljós. Þar er unnið með eitt meginverkfæri ljósmyndarans ljósið. Nemendur læra þar að lesa í ljós og að beita því við myndatökur, að nota mismunandi ljósgjafa og  blanda saman ólíkum ljósgjöfum. Áfanginn er í fjórum hlutum og er kenndur af tveimur kennurum auk gestafyrirlesara.

Það er í síðasta hluta áfangans sem nemendur vinna  undir handleiðslu ljósmyndara að þessu samstarfsverkefni með fataverkefni Rauða krossins. Að þessu sinni var  Yael BC.  leiðbeinandi nemenda í þessum hluta áfangans. Verkefnið er hópaverkefni og felst í því að nota fatnað frá verslunum Rauða krossins í myndatökum, búa til áhugaverðar myndir sem vekja athygli á verkefninu og inntaki þess. Myndirnar eru í framhaldi notaðar á vegum Rauða krossins til að vekja athygli á verkefninu.

Með fataverkefni Rauða krossins er verið að gefa fötum nýtt líf, endurnýta, sporna við sóun og með því að stemma stigu við hnattrænni hlýnun. Öll innkoma af sölu á notuðum fatnaði  í verslunum Rauða krossins fer til góðgerðarmála eða hjálparstarfs á vegum Rauða krossins.

Melkorka Gunnarsdóttir, Gunnar Ragnarsson og Drífa Huld Jóhannsdóttir.Látum fötin skína

„Markmið okkar með verkefninu er að sýna fram á að hægt er að versla og nota föt frá Rauða kross verslunum óháð árstíðum. Það er gott ráð að versla við Rauða kross búðirnar þegar uppfæra á fataskápinn og að hafa þannig sjálfbærni að leiðarljósi. 

Nú, þegar senn fer að vora, var það aðaláhersla okkar í verkefninu að notast við bjarta liti og leyfa fötunum að skína á ný.“

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur