Samstarf Ljósmyndaskólans og fataverkefnis Rauða krossins – Réttlæti

Samstarf Ljósmyndaskólans og fataverkefnis Rauða krossins.

Hluti af námi nemenda á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 við Ljósmyndaskólann er áfanginn Að lesa í og skapa ljós. Þar er unnið með eitt meginverkfæri ljósmyndarans ljósið. Nemendur læra þar að lesa í ljós og að beita því við myndatökur, að nota mismunandi ljósgjafa og  blanda saman ólíkum ljósgjöfum.

Áfanginn er í fjórum hlutum og er kenndur af tveimur kennurum auk gestafyrirlesara.

Það er í síðasta hluta áfangans sem nemendur vinna  undir handleiðslu ljósmyndara að þessu samstarfsverkefni með fataverkefni Rauða krossins.

Að þessu sinni leiðbeindi Saga Sig.  nemendum.

Verkefnið er hópaverkefni og felst í því að nota fatnað frá verslunum Rauða krossins í myndatökum, búa til áhugaverðar myndir sem vekja athygli á verkefninu og inntaki þess. Myndirnar eru svo notaðar á vegum Rauða krossins til að vekja athygli á verkefninu.

Með fataverkefni Rauða krossins er verið að gefa fötum nýtt líf, endurnýta, sporna við sóun og með því meðal annars að stemma stigu við hnattrænni hlýnun.

Öll innkoma af sölu á notuðum fatnaði  í verslunum Rauða krossins fer til góðgerðarmála eða hjálparstarfs á vegum Rauða krossins.

Helgi Vignir Bragason instagram: @helgi.vignir, Sigríður Hermannsdóttir, instagram: @sigridurhermannsss og María Björt Ármannsdóttir, instagram: @maria.bjort.armannsdottir unnu verkefni sem þau nefndu Réttlæti.

 RÉTTLÆTI: Verkið Réttlæti er undir áhrifum á tökustaðnum sem að er fyrrum hæstaréttarhús Íslands að Lindargötu 5. Settar eruupp óræðar sviðsmyndir af einstakling í samtali við rýmin sem hún er staðsett í. Myndirnar vekja upp spurningar þar sem einstaklingurinn á myndunum er bæði kvenlæg og karllæg á sinn hátt. Með því að para það við staðsetninguna vekur það athygli á stöðu kvenna í réttarkerfi fortíðar og nútíðar.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun