Sigríður Hermannsdóttir – The dictionary of falling in love for the first time (with the right person)

Síðasti áfangi námsins á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 kallast Lokaverkefni. Þar velja nemendur eitt af þeim verkefnum sem þau hafa unnið í áföngum vetrar og fá aðstoð kennara við að þróa það áfram allt til framsetningar á sýningu.  Claudia Hausfeld sem leiddi nemendur í vinnunni í áfanganum Lokaverkefni.

Sigríður Hermannsdóttir nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 sótti innblástur í viðfangsefni Lokaverkefnis  til  annars verks sem hún vann fyrr á vorönn í vinnustofunni Persónuleg heimildaljósmyndun. Þar unnu nemendur undir handleiðslu Einars Fals Ingólfssonar

Sigríður segir um verkið The dictionary of falling in love for the first time (with the right person):

Ég get ekki fundið orð til þess að lýsa því hvernig mér líður gagnvart henni, en með þessu verki er ég að reyna það. Verkið samanstendur af orðum, textum og ljósmyndum sem tengjast því að vera ástfangin í fyrsta skipti af réttri manneskju. Þetta er í raun orðabók og ástarbréf á sama tíma.

 

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna