Samstarfsaðilar

Stefna Ljósmyndaskólans er að standast fyllilega samanburð við sambærilegar menntastofnanir erlendis og vera þar í fremstu röð.

Ljósmyndaskólinn er í samstarfi við The Glasgow School of Art og Arts University Bournemouth.

Geta nemendur Ljósmyndskólans sótt um að ljúka þar námi til B.A. gráðu eða sótt um hæfnismat til inngöngu í meistaranám.




Ljósmyndaskólinn er í ýmiskonar samstarfi við aðrar menntastofnanir erlendis svo sem eins og Paris College of Art og MCAST- Malta College of Arts, Science and Technology. Varðar það samstarf einkum heimsóknir, skólaþróun, sýningar og vinnustofur nemenda.

Árlega fara nemendur í seinni hluta námsins á sýninguna Paris Photo og taka þátt í viðburðum í tengslum við hana.

Ljósmyndaskólinn er einn stofnaðila Samtaka sjálfstæðra listaskóla sem eru samstarfsvettvangur sjálfstæðra listaskóla á Íslandi. Tilgangur samtakanna er að gæta sameiginlegra hagsmuna skólanna og nemenda þeirra, efla listkennslu á framhalds- og háskólastigi, deila þekkingu og reynslu milli skólanna og tryggja eðlilega námsframvindu nemenda skólanna.

Ljósmyndaskólinn hefur viðurkenningu Menntamálastofnunar til reksturs einkaskóla á framhaldskólastigi. Sjá hér.

Þann 7. apríl 2021 var undirritaður samstarfssamningur við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Sá samningur hefur verið framlengdur. Hann hefur gildistíma til 30. júní 2026. Sjá má afrit samnings og ákvæði hér.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun