Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans í Ljósmyndasafni Reykjavíkur

Kaffi, dulkóði, ísaumur og fangaklefi sem verður að myndavél eru meðal þess sem ber fyrir augu á sýningu á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem opnar þann 16. desember kl. 16.00.

Að þessu sinni sýna níu nemendur verk sín og eru þau afar fjölbreytt. Þar er meðal annars  fjallað um hvernig hægt er að flétta sögu úr minningum annarra, loftlagssorg, einelti, kvennaklefann og líkamstjáningu. Verkin endurspegla gróskuna í samtímaljósmyndun í dag og þá margvíslegu möguleika sem í ljósmyndamiðlinum felast.

Útskriftarnemendurnir eru: Dagný Skúladóttir, Einar Óskar Sigurðsson, Guðný Maren Valsdóttir, Guðrún Sif Ólafsdóttir, Lovísa Fanney Árnadóttir, Kristín Ásta Kristinsdóttir, Sandra Björk Bjarnadóttir, Sóley Þorvaldsdóttir og Steinar Gíslason.

Sýningin opnar þann 16. desember kl. 16:00 í Ljósmyndasafni Íslands, á 6. hæð í Grófarhúsi við Tryggvagötu 15 og lýkur 8. janúar 2023.

Aðgangur er ókeypis.

Á sýningartímanum verður boðið upp á leiðsagnir nemenda um sýninguna. Þær leiðsagnir verða auglýstar á miðlum Ljósmyndasafns og Ljósmyndaskólans.

Kynningarmynd er úr verki Guðnýjar Marenar Valsdóttur Ég ert þú og þú ert ég

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna