Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Þann 12. desember kl. 16.00 opnar sýning á útskriftarverkum þeirra nemenda sem nú ljúka námi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum. Að þessu sinni útskrifast fjórir nemendur sem ljúka þar með 150 Fein eininga námi af Námsbrautum í skapandi ljósmyndun.

Útskriftarnemendur eru:

Elva Þrastardóttir

Gunnar Ragnarsson

Iris Hadda

Lilja Birna Arnórsdóttir

Verk þeirra eru ólík hvað varðar efnistök, hugmyndir og tækni, endurspegla fjölbreytta möguleika ljósmyndamiðilsins og samtímaljósmyndunar. 

Sýningin er í Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography en um árabil hefur Ljósmyndaskólinn verið í samstarfi við Ljósmyndasafnið um að hýsa sýningu á útskriftarverkefnum nemenda.

Sýningin stendur til 11. janúar 2026 og er opin á opnunartíma safnsins. 

Á sýningartímabilinu munu nemendur verða með leiðsagnir um sýninguna og verða tímasetningar þeirra auglýstar sérstaklega á miðlum safnsins og skólans.

Verið öll velkomin.

Kynningarmynd er úr útskriftarverki Írisar Höddu „Rauð klamídíuviðvörun um helgina“.

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur